Fjórtán nýfædd börn létust í eldsvoða á fæðingardeild í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í nótt. Aðeins einu barni tókst að bjarga.Yfirvöld segja slökkviliðið hafa komið á vettvang innan fimm til tíu mínútna en það er dregið í efa af vitnum. Þau segja meðal annars að neyðarútgöngum hafi verið ábótavant og að öryggisverðir hafi hindrað fólk í að komast út.Foreldrar barnanna segja björgunarlið og lögreglu hafa verið of lengi á leiðinni. „Af hverju var fæðingardeildin læst? Tveimur tímum síðar kom slökkviliðið og fjórum tímum lögreglan,“ sagði móðir sem missti nýfæddan son sinn.Talið er að bilun í loftkælingu hafi valdið eldinum. Hátt settur embættismaður í heilbrigðiskerfinu hefur verið rekinn og forseti Pakistans segir að sækja þurfi þá til saka sem beri ábyrgð.