Tímabilið þar sem lundapysjum sem hafa rambað inn á byggt ból er bjargað og þeim sleppt út á sjó stendur sem hæst um þessar mundir. Langflestar pysjur finnast í Vestamannaeyjum og hefur þar verið útbúið sérstakt sleppisvæði en í það minnsta einni lundapysju hefur verið bjargað af götum Reykjavíkur þetta árið.