Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að ef svar þjóðarinnar á laugardaginn er neikvætt veiki það stöðu ríkisstjórnarinnar. Eins og flestir vita fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla á laugardaginn þar sem þjóðin velur já eða nei við því hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.„Það veikir ríkisstjórnina augljóslega. Ríkisstjórnin biður þjóðina að samþykkja að hefja aðildarsamninga við Evrópusambandið að nýju því það er það sem ríkisstjórnin vill gera. Hún hefur forystu um þetta mál og hafni þjóðin þeirri ósk ríkisstjórnarinnar þá situr stjórnin þeim mun veikari þar á eftir,“ segir Eiríkur. Rætt var við hann í Speglinum í kvöld.Hann býst ekki við því að neikvætt svar komi til með að fella stjórnina.„Það eina sem fellir ríkisstjórnir er ef hún missir þingmeirihluta