Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins

Haustverk franskra vínbænda eru að tína vínber. Þannig hefur það verið lengi, en ekki í ár. Vínberjatínsla hófst óvenju snemma víða í Frakklandi í sumar.Sums staðar í Languedoc var byrjað um miðjan júlí og í Champagne var 12. ágúst opinbert upphaf uppskerutíðarinnar, venjulega er það í september.Le Monde segir þetta endurspegla önnur héruð og berjategundir, allt sé á undan áætlun.Mildari vetur og vor þýddu að sprettan fór fyrr af stað og hitabylgjur frá lokum maí flýttu þroskanum enn frekar. Við bættist svo þurrkurinn sem þýddi minni og safaminni ber og minni uppskeru. Sykur hefur safnast hratt í þeim á meðan sýran minnkar.Þetta hefur bein áhrif á bæði magn og gæði vínsins. Minna ber með minni safa gefur færri lítra. Meiri sykur getur á sama tíma leitt til hærri alkóhólstyrks, en minni sýr
Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd