Húsnæði stofnunarinnar á Selfossi er löngu orðið sprungið og miklir erfiðleikar eru við að finna eitthvað laust pláss fyrir aukna starfsemi.Forstjóri stofnunarinnar kynnti m.a. þær miklu framkvæmdir sem stendur nú til að ráðast í á síðasta ársfundi, sem haldin var á Hótel Selfossi.„Og nú hefur verið samþykkt að fara af stað bæði með endurbætur og viðbyggingu. Viðbyggingin upp á 5.200 fermetra, þannig að það mun nú aldeilis muna um það. Fyrsti áfangi er að farinn af stað og er fullfjármagnaður þannig að nú bíðum við bara eftir því að hefjast handa,” segir Díana Óskarsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.Heilmiklar framkvæmdir eru að fara að hefjast hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi en þar á að fara að byggja við húsnæði stofnunarinnar fyrir um tíu milljarða króna.Dían