Orkuveitan greinir frá því að regnbogafánum hafi verið stolið við höfuðstöðvarnar. Þegar hafa verið keyptir nýjir fánar og dregnir að húni.Þetta kemur fram í tilkynningu Orkuveitunnar í færslu á samfélagsmiðlum. Þjófnaðurinn átti sér stað á Hinsegin dögum, 4. til 9. ágúst síðastliðinn.