Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur segir ekki skýrt í lögum hver beri ábyrgð á líki frá útgáfu dánarvottorðs þar til útför fer fram. Um þrjú hundruð duftker hafa safnast upp í líkhúsi í Fossvogskirkjugarði og bíða þar greftrunar. Það elsta hefur verið þar frá 2011. ÓHEIMILT AÐ GEYMA DUFTKER ANNARS STAÐAR EN Í LÍKHÚSI Flest endum við á sama stað þegar jarðnesku lífi lýkur. Á undanförnum árum hefur bálförum farið fjölgandi og á þessu ári er gert ráð fyrir að þær verði 1300, tæplega helmingur allra útfara.Samkvæmt lögum er óheimilt að geyma duftker frá bálför fram að greftrun annars staðar en í líkhúsi.Um 300 duftker hafa safnast upp í líkhúsi Fossvogskirkjugarðs og bíða þess að vera sótt. Það elsta hefur verið þar í 15 ár. Framkvæmdastjóri kirkjugarða Reykjavíkur segir að skýra þurf