Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inni í áformum ríkisstjórnarinnar sem samþykkti hallalausa fjármálaáætlun fyrr í sumar.Að mati flestra þeirra sem fréttastofa hafði samband við sjá þau engan annan kost mögulegan en að þessi hækkun muni skila sér í hærri aðgangseyri fyrir gesti baðlónanna. Sem dæmi má nefna að í dag kostar 7900 krónur í Skógarböðin á Akureyri. Ef verðið hækkar sem nemur breytingunni á virðisaukaskattinum gæti kostað 8850 krónur í böðin eftir áramót. Það gæti skilað sér í fækkun gesta og dregið úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Baðlónin séu mikið aðdráttarafl á landinu. FJÁRMÁLARÁÐHERRA SEGIR HEILDARSKATTBYRÐI LÆKKA Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir