Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er kölluð út oft á dag og eru útköllin eins fjölbreytt og þau eru mörg en í dag barst lögreglu á stöð 1 tilkynning um nágrannaerjur í hverfi 104 en í kerfum er skráð að þær hafi brutist út vegna pallbíls sem var illa lagt. Ekki liggur fyrir hvar honum var lagt né hvernig málið var afgreitt.