Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi

Heildartekjur Sýnar á öðrum ársfjórðungi jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu var vöxturinn 5,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar.Þar segir að vöxtinn megi helst rekja til kjarnastarfseminnar. Meðal annars jukust tekjur af fjölmiðlun um 12,3% milli ára en 9,1% af auglýsingasölu.Heildarrekstrarkostnaður Sýnar lækkar um 2,3% milli ára. „Þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu,“ segir í tilkynningunni. VEF- OG ÚTVARPSMIÐLAR ÁFRAM INNAN FÉLAGSINS Viðræðum Sýnar og Ása, sem áður voru Síminn, um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar var slitið á dögunum. Félögin komust að þessari niðurstöðu eftir áreiðanleikakönnun. „Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026,“ se
Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd