Stuðningur Íslendinga í hernaðarmálum, á stjórnmálasviði, í orkumálum og við mannúðaraðstoð er Úkraínumönnum lífsspursmál. Þetta segir í yfirlýsingu Ruslans Stefanchuks, forseta úkraínska þjóðþingsins, til fjölmiðla.„Hið sama gildir um liðveislu ykkar við það að sækja úkraínsk börn sem Rússar hafa numið á brott, í blóra við öll lög, og færa þau aftur heim.“Stefanchuk er í opinberri heimsókn á Íslandi í boði forseta Alþingis. Hann verður sérstakur gestur á fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á morgun.Í yfirlýsingu sinni segir Stefanchuk að fleira verði rætt en stríðið, ekki síst framtíðin.„Um það hvernig við getum eflt tengsl Úkraínu og Íslands að stríðinu loknu og hvernig við getum lagt grunninn að þeirri framtíð strax í dag.“ FENGU ORÐU JAROSLAVS HINS VITRA Þórunn S