Minnst 100 látin og hátt í 600 ferðamanna saknað í hamfaraflóðum

Hátt í 600 ferðamenn eru á meðal þeirra sem er saknað eftir skyndiflóð í Nepal. Þegar hafa 98 fundist látin.Hamfaraflóð ruddu húsum, brúm og farartækjum á undan sér þegar ár bólgnuðu út á svipstundu. Hundrað hafa þegar fundist látin og óttast er um afdrif mörg hundruð manna. ERLENDIR FERÐAMENN FRÁ 28 LÖNDUM Þar á meðal eru hátt í sex hundruð ferðamenn. 113 eru nepalskir ferðamenn en 466 eru erlendir ferðamenn frá að minnsta kosti 28 löndum.Í nágrannaríkinu Kína, nánar tiltekið sjálfstjórnarsvæðinu Tíbet, hafa þrír fundist látnir í aurskriðum og á þriðja hundrað er saknað. Yfirvöld í bæði Nepal og Kína hafa tilkynnt að þau sendi fjölmennt björgunarlið á vettvang. BJÖRGUNARAÐGERÐIR STANDA ENN YFIR Enn er óljóst hvað nákvæmlega olli flóðunum. Ein kenning er að snjóflóð hafi valdið því a
Minnst 100 látin og hátt í 600 ferðamanna saknað í hamfaraflóðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd