Harry Bretaprins og Meghan hertogynja af Sussex eru snúin aftur til Bretlands eftir sex ára búsetu vestanhafs. Samkvæmt BBC komu þau með einkaflugvél frá Kaliforníu í Bandaríkjunum til Bretlands.Margt er enn á huldu varðandi vistaskipti hjónanna. Ekki er ljóst hvort þau séu flutt aftur fyrir fullt og allt en þau ætla að dvelja í Bretlandi í einhvern tíma en eiga áfram húsið sitt í Bandaríkjunum. EKKERT HEYRST FRÁ BUCKINGHAM-HÖLL Ekkert hefur heyrst frá Buckingham-höll um heimkomu hjónanna enda ætla þau ekki að taka upp opinber störf fyrir krúnuna. Þá er talið að þau setjist að í Cotswold, sem er um miðja vegu milli Birmingham og Lundúna.Börn þeirra, Archie prins, sjö ára, og Lillibet prinsessa, fimm ára, hafa verið skráð í breskan skóla. Líklegt þykir að Harry sinni störfum fyrir hin ým