Flestir treysta RÚV en fæstir DV

Flestir treysta umfjöllun fréttastofu RÚV um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem var unnin fyrir fréttastofu Vísis.Samkvæmt könnunninni bera 51,5% mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar RÚV. Næstmest traust ber fólk til Vísis, eða 34%.Fæstir bera traust til umfjöllunar DV eða 5,9%. Þá sögðust um tveir af hverjum þremur bera fremur lítið, mjög lítið eða ekkert traust til umfjöllunar miðilsins um þjóðaratkvæðagreiðsluna.Hægt var að svara hvort fólk bæri mikið, fremur mikið, í meðallagi mikið traust, fremur lítið, mjög lítið eða ekkert traust til umfjöllunar miðlanna.Könnunin var gerð dagana 21.–25. ágúst. Alls svöruðu 1.019 könnuninni.
Flestir treysta RÚV en fæstir DV

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd