Hægt að gera betur í að koma upplýsingum til ferðamanna

„Ísland verður sennilega seint það öruggur áfangastaður að enginn okkar erlendu gesta muni lenda í óhöppum en við getum gert betur í að koma til þeirra upplýsingum,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.Hann segir Ísland almennt huga vel að öryggi erlendra ferðamanna en alltaf megi gera betur. Borið hefur á gagnrýni á öryggisráðstafanir á fjölsóttum ferðamannastöðum eftir banaslys í Stuðlagili í vikunni.Jón Þór segir Ísland eiga góðan farveg til upplýsingagjafar, Safetravel, sem nýta mætti betur. Safetravel er upplýsingamiðill, bæði á vef og í smáforriti, þar sem erlendir ferðamenn geta nálgast upplýsingar meðal annars um færð, veður og varasama áfangastaði.Ósk Landsbjargar er að bæta viðmót Safetravel og auka sýnileika þess, meðal annars við komu
Hægt að gera betur í að koma upplýsingum til ferðamanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd