Meta greiðir jafnvirði 2.000 milljarða króna vegna málaferla

Samfélagsmiðlarisinn Meta hefur fallist á að greiða því sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna til bandarískra ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu. Sátt náðist í dag.29 ríki höfðuðu málið og sökuðu Meta um að gera börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. „RAUNVERULEGAR BREYTINGAR“ Meta hefur jafnframt samþykkt að ráðast í umfangsmiklar breytingar með það að markmiði að draga úr hættu á skaða af völdum samfélagsmiðla sinna. Rob Ronta, ríkissaksóknari í Kaliforníu, sagði að það myndi gerast innan nokkurra mánaða.Hann sagði niðurstöðuna endurspegla raunverulegar breytingar, gagnsæi og raunverulegar varnir fyrir börn.Samkvæmt gögnum málsins viðurkennir Meta hins vegar ekki ábyrgð á neinum misgjörðum. Fyrirtækið hefur alfarið neitað ásökunum stefnenda.
Meta greiðir jafnvirði 2.000 milljarða króna vegna málaferla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd