Stefnt er að því að göngudeild endurhæfingar SAk, sem áður var á Kristnesspítala í Eyjafirði, fari í leiguhúsnæði á Akureyri fyrir áramót. Velunnarar Kristness hafa boðað til samstöðutónleika um helgina en alls óvíst er hvað verður um gamla spítalann.Á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit hefur verið endurhæfingar- og öldrunardeild Sjúkrahússins á Akureyri um árabil. Snemma á þessu ári vöknuðu grunsemdir um að þar væru rakaskemmdir og mygla.Snemma í sumar kom í ljós að þær skemmdir voru talsvert meiri en talið var í fyrstu og ljóst að húsakosturinn væri hvorki öruggur fyrir sjúklinga né starfsfólk.Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, segir þeirra verkefni fyrst og fremst að tryggja þjónustuna, sem hafi verið fundinn staður innan sjúkrahússins á meðan annarra lausna er leitað.„Og þar að mínu mati