Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni.