Hamfaraflóð ruddi á undan sér húsum og farartækjum þegar það steyptist niður fjalladali í Nepal í dag. 95 hafa fundist látnir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Nepal. Ekkert er vitað um afdrif 384 innlendra og erlendra ferðamanna því ekki hefur náðst samband við þá eftir flóðin.Trishuli-áin bólgnaði hratt þegar vatnsmagnið í henni jókst til mikilla muna á svipstundu.Af myndskeiðum má sjá margra hæða hús hrynja og brú eyðileggjast undan krafti flóðsins.Yfirvöld í bæði Nepal og Kína hafa tilkynnt að þau sendi fjölmennt björgunarlið á vettvang.Xi Jinping, forseti Kína, sagði að mikilvægast væri að gera allt sem mögulegt væri til að bjarga fólki sem er saknað, hjúkra því sem hefði slasast og takmarka manntjón eins og hægt er.Suman Chalise, kennari í Nuwakot-héraði, sagðist í viðtali við AFP