Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirbýr nú tillögur að breytingum á stækkunarstefnu sambandsins; tillögur sem til stendur að leggja fram á næstu vikum og ræddar verði á næsta leiðtogafundi ESB um miðjan október.Forsmekkurinn að þessum tillögum kom fram í ræðu Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Zagreb í gær, þar sem Kos lagði meðal annars áherslu á nauðsyn þess að gera breytingar á innviðum Evrópusambandsins svo hægt verði að fjölga í hópnum án mikilla vandkvæða.„Þegar ég tala um mögulegar breytingar á innra skipulagi, þá gæti það meðal annars snúist um að fækka þeim sviðum þar sem eitt einstakt aðildarríki getur staðið í vegi fyrir öllum öðrum. Það gæti einnig snúist um að gera stofnanir okkar smærri,“ sagði Kos í ræðu sinni.Umræða um smærri stofnanir í tengslum við fjölgu