Seiðmaðurinn og eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu, Durek Verrett, hefur gengist undir nýrnaígræðslu á Ríkisspítalanum í Ósló. Ígræðslan er sögð hafa gengið vel eftir langa bið eftir líffæragjafa. Hann var 28 ára gamall þegar hann greindist með ólæknandi nýrnasjúkdóm.