Íslandshótel töpuðu rúmlega einum milljarði króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Það er þó ögn betri afkoma en á sama ári. Tapið minnkar úr 1.147 milljónum í 1.028 frá fyrri hluta síðasta árs til fyrri hluta þessa árs.Í tilkynningu Íslandshótela segir að gistinætur erlendra ferðamanna hafi verið álíka margar og á sama tíma í fyrra þrátt fyrir samdrátt í millilandaflugi. Tekjur jukust um 2,2 prósent milli ára. Forsvarsmenn Íslandshótela segja nokkra óvissu ríkja um horfur næstu mánuði. Þær ráðist meðal annars af flugframboði, efnahagsþróun á helstu markaðssvæðum og samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.Hótel Reykjavík Grand er eitt af hótelum Íslandshótela.RÚV / Kristín Sigurðardóttir