Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar.