Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi Björn Inga Helgason í sumar í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Dómurinn var kveðinn upp 8. júlí en ekki birtur fyrr en í gær. Björn Ingi var sakfelldur fyrir að nauðga konu á heimili hennar á Akureyri í apríl 2024. Þau höfðu farið saman út um kvöldið og síðan haldið heim til hennar. Þar hafi þau hafið kynlíf með samþykki beggja en maðurinn byrjað að beita hana ofbeldi og í engu sinnt beiðnum hennar um að hætta. Konan náði að hafa samband við vin sinn sem kallaði á lögreglu. Þegar lögregla kom á vettvang handtók hún Björn Inga. Konan greindi frá því hvernig maðurinn hefði brotið á sér og þótti dómara framburður hennar trúverðugur og stöðugur í meginatriðum. Minniháttar ósamræmi þótti ekki rýra trúverðugleika hennar. Að auki fékk frásögn henna