„Við skiljum vel að breytingar á kunnuglegum karakter geti vakið viðbrögð og að notkun gervigreindar veki umræðu,“ segir í yfirlýsingu frá Mjólkursamsölunni um nýja auglýsingu fyrir ostinn Gotta.Morgunútvarpið fjallaði um notkun gervigreindar í auglýsingum í morgun ásamt Selmu Rut Þorsteinsdóttur, formanni SÍA. Auglýsing MS vakti hörð viðbrögð fólks sem var ósátt við notkun gervigreindar.„Það er okkur mikilvægt að koma því á framfæri að efnið með Gotta er ekki unnið af gervigreind í stað skapandi fagfólks,“ segir í yfirlýsingu MS. „Að baki því stendur þverfaglegur hópur hugmyndasmiða, hönnuða og textahöfunda. Gervigreind er framleiðslutæki og er nýtt samhliða þeirri tækni sem við höfum þekkt til um árabil. Mannleg hugmyndavinna og sköpun er áfram grunnurinn að öllu efni.“