Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í gær með 700 tonn af makríl. Þá er Börkur NK á landleið með 650 tonn til viðbótar. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að löndun og vinnsla úr Vilhelmi Þorsteinssyni hafi hafist strax eftir að lagst var að bryggju.