Guðmundur Fertram verður erindreki hjá Hringborði Norðurslóða

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, verður sérlegur erindreki fjárfestinga og viðskipta hjá Hringborði Norðurslóða, eða Arctic Circle. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hringborði Norðurslóða.„Í því hlutverki mun hann stuðla að auknum fjárfestingum, viðskiptum og frumkvöðlastarfsemi á Norðurslóðum fyrir fjárfesta, fyrirtæki og frumkvöðla,“ segir í tilkynningunni.Viðskiptaþing Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle Business Forum, verður haldið í október.Fyrr í ágúst var greint frá því að Guðmundur hefði verið skipaður í nýja stöðu innan Coloplast sem keypti Kerecis á 175 milljarða króna árið 2023.RÚV / Ragnar Visage
Guðmundur Fertram verður erindreki hjá Hringborði Norðurslóða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd