Annar handtekinn vegna sverðaárásar í Svíþjóð

Sænska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna sverðaárásarinnar sem var framin í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð föstudaginn 21. ágúst. Samkvæmt lögreglu hefur hann engin tengsl við skólann.Sautján ára stúlka var drepin og þrír unglingsdrengir særðir, þar af tveir alvarlega, í árásinni á Brinell-skólann.Liam Nebel, 18 ára fyrrverandi nemandi við skólann, var handtekinn á vettvangi eftir að lögregla skaut hann í fótinn. Hann er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps.Aftonbladet greinir frá því að lögregluna hafi fljótlega grunað að fleiri hafi átt aðild að ódæðinu. Samkvæmt heimildum blaðsins gerði lögregla rassíur í Stokkhólmi og nágrenni um helgina og var maður handtekinn þá.
Annar handtekinn vegna sverðaárásar í Svíþjóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd