„Ég var send til sálfræðings í 10. bekk en þegar ég byrjaði í framhaldsskóla var þetta farið að há mér miklu meira og ég var send í neyðarvistun hjá barna- og unglingageðdeild eftir að ég sagði mömmu að ég væri farin að skaða sjálfa mig,“ segir Thelma Lind Karlsdóttir sem alla ævi hefur þjáðst af mígreni og nú stofnað Mígrenissamtökin.