Hvítvoðungar létust í eldsvoða á spítala í Pakistan

Eldur kviknaði á kvenna- og ungbarnadeild ríkissjúkrahúss í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í morgun og varð minnst 14 hvítvoðungum að bana. Aðeins einu barni var bjargað.Spítalinn er einn sá stærsti í borginni og fjölskyldur söfnuðust saman fyrir utan í áfalli og mikilli sorg. Einn maður tjáði BBC Urdu að hann hefði misst þriggja daga gamalt barnið sitt.Stjórnvöld í Pakistan heita ítarlegri rannsókn og forsætisráðherrann Shehbaz Sharif hefur rekið hátt settan embættismann innan heilbrigðiskerfisins.Eldurinn kviknaði í loftkælingu og breiddist hratt út. Það voru 15 nýfædd börn á deildinni og aðeins tókst að bjarga einu þeirra.
Hvítvoðungar létust í eldsvoða á spítala í Pakistan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd