Atvinnuleysi jókst talsvert í júlí samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Samkvæmt henni fór mælt atvinnuleysi úr 3,9 prósentum í júní í 5,5 prósent í júlí og árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst úr 5,1 í 6,3 prósent. Þetta er önnur þróun en sjá má af tölum Vinnumálastofnunar.Vinnumálastofnun greindi frá því fyrr í þessum mánuði að atvinnuleysi hefði verið 4,0 prósent í júlí og verið óbreytt frá því í júní. Hún spáði því að atvinnuleysi stæði í stað í ágúst. Hagstofan byggir tölur sínar á vinnumarkaðsrannsókn þar sem atvinnuþátttaka er skoðuð með könnun. Vinnumálastofnun byggir á skráðu atvinnuleysi þeirra sem sækja um atvinnuleysisbætur. 12.900 voru atvinnulausir í júlí, samkvæmt könnun Hagstofunnar. 8.423 voru atvinnulausir í sama mánuði samkvæmt skrám Vinnumálastofnunar. Hvað er vinn