Eggert skipaður forstjóri Hafró

Eggert Benedikt Guðmundsson verður forstjóri Hafrannsóknastofnunar næstu fimm árin. Þetta varð ljóst þegar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skipaði hann í embættið. Eggert er ekki ókunnugur þessu hlutverki því hann hefur verið starfandi forstjóri Hafró síðan í október.Eggert var forstjóri HB Granda 2005 til 2012 og forstjóri N1 2012 til 2015. Hann var síðar forstjóri eTactica og ráðgjafi hjá Icecure. Frá 2022 til 2025 var Eggert leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu og þar áður forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.Eggert Benedikt Guðmundsson.RÚV / Ragnar Visage
Eggert skipaður forstjóri Hafró

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd