„Augun fimm“ beinast að hættum og tækifærum gervigreindar

Hættan sem steðjar af stóraukinni getu til að valda skaða með gervigreind var í forgrunni viðræðna fimm vestrænna ríkja sem deila með sér upplýsingum frá leyniþjónustum sínum og öryggisstofnunum.Ráðherrar frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Kanada hittust á fundi í Sydney í Ástralíu í dag. Ríkin eiga með sér samstarf um að deila mikilvægum upplýsingum og er það oft kallað Five Eyes eða Augun fimm.Tony Burke, innanríkisráðherra Ástralíu, sagði að sú hraða framþróun sem hefði orðið í þróun gervigreindar og vafasamrar notkunar hennar hefði verið mikið rædd á fundinum. Auk þess hefðu ráðherrarnir rætt hvernig nota mætti gervigreind til að sporna gegn hryðjuverkum, smygli og skipulagðri starfsemi auk alls kyns svika og pretta.
„Augun fimm“ beinast að hættum og tækifærum gervigreindar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd