Að minnsta kosti fjórtán nýburar eru látnir eftir að eldur kviknaði á fæðingardeild í Islamabad í Pakistan. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá loftræstikerfi í fæðingardeildinni og dreifðist hratt þaðan. Nýburarnir voru flestir í hitakössum eða tengdir við súrefnisslöngur, en eldurinn fór hratt um súrefnisdreifikerfi fæðingardeildarinnar.