Stracta-hótelin sett á sölulista

Hreiðar Hermannsson, stofnandi og eigandi Stracta-hótela, hefur ákveðið að selja bæði hótel fyrirtækisins á Hellu auk þriggja veitingastaða og iðnaðarþvottahúss sem tengist rekstrinum. Hreiðar segist í tilkynningu um söluna vilja hægja á sér og verja meiri tíma með fjölskyldunni og öðrum hugðarefnum. Hótelin tvö eru með samtals 236 herbergi. Til hefur staðið að fjölga herbergjum á Stracta hóteli úr 185 í 409 með fjórum viðbyggingum. Hótelin voru reist fyrir rúmlega áratug, 2014. Auk Hreiðars kom Hermann sonur hans, fótboltaþjálfari og áður atvinnumaður í fótbolta, að uppbyggingunni í upphafi. Í tilkynningu um fyrirhugaða sölu segir að Hreiðar hyggist láta hluta ágóðans renna til góðra málefna.
Stracta-hótelin sett á sölulista

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd