Yfirmaður CIA á fundi í Moskvu

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, John Ratcliffe, flaug til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í gær til að fara á fund. CBS News hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að þetta sé fyrsta heimsókn hans til Rússlands sem yfirmaður CIA, svo vitað sé.Hvorki rússnesk né bandarísk yfirvöld, Hvíta húsið, Pentagon né bandaríska leyniþjónustan CIA hafa gefið nokkuð upp um með hverjum Ratcliffe var að funda eða hvert efni fundarins var.Samkvæmt flugupplýsingum flaug Ratcliffe með bandarískri herflugvél af gerðinni C-17A Globemaster frá Bandaríkjunum til Riga í Lettlandi í gærmorgun og þaðan áfram til Moskvu. Vélin snéri til Riga síðdegis í gær.Breska ríkisútvarpið segir að bandarísk stjórnvöld hafi greint stjórnvöldum í Úkraínu frá því að háttsett sendiferð væri á leið til Moskvu og farið
Yfirmaður CIA á fundi í Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd