Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandaríski herinn sé búinn að fjarlægja eða gera óvirk öll tundurdufl í Hormússundi. Hann greindi frá þessu í færslu á Truth Social í gær.Hann sagði að Íranar hefðu verið látnir vita að hverju því skipi eða báti sem reyni að koma fyrir nýjum tundurduflum yrði grandað. Stjórnvöld í Íran hafa ekki brugðist enn við þessari tilkynningu Bandaríkjaforseta.Yfirvöld í Íran og Óman eru í viðræðum um að opna siglingaleið tímabundið og hreinsun tundurdufla í Hormússundi. Stjórnvöld í Íran hafa þó varað við að siglingarleiðin verði ekki opnuð fyrr en Bandaríkin bindi enda á stríðið.Íran og Óman eiga bæði landamæri að sundinu og reyna að vinna eftir þeirri áætlun sem Íranar og Bandaríkin sömdu um í viljayfirlýsingu sín á milli fyrr á árinu.Aðstoðarutanríkisráðher