Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær tvo bandaríska ríkisborgara á þrítugsaldri til fimm ára fangelsisvistar. Þeir voru staðnir að því að reyna að smygla ellefu kílóum af marijúana til landsins. Efnið var í farangurstösku annars mannanna þegar þeir komu með flugi frá Denver í Bandaríkjunum.Báðir játuðu sök. Ljóst þótti að þeir ættu ekki efnin. Þess í stað hefðu þeir tekið að sé að flytja þau gegn greiðslu. Mennirnir voru handteknir á Keflavíkurflugvelli 19. júlí og úrskurðaðir í gæsluvarðhald degi síðar. Það kemur til frádráttar fimm mánaða fangelsisrefsingu hvors um sig.Mennirnir voru handteknir á Keflavíkurflugvelli.RÚV / Ragnar Visage