Lögregla leitar stórtækra ostruþjófa

Ostrur þykja mikill herramannsmatur.EPA / TERESA SUAREZLögregluyfirvöld í New South Wales leita nú þjófa sem rændu ostrum frá ostrueldi nærri Taree, norður af Sydney í Ástralíu. Þjófarnir rændu yfir 300 pokum með um 400 þúsund ostrum og er verðmæti þeirra metið á 350.000 ástralska dollara eða um 30,4 milljónir íslenskra króna.Þjófnaðurinn átti sér stað fyrr á þessu ári. Lögregluyfirvöld greindu þó fyrst frá þjófnaðinum í gær og óskuðu eftir hvers kyns upplýsingum frá almenningi varðandi ránið.Ostrur eru vinsælar á matseðlum veitingastaða í Ástralíu og staðbundnar tegundir eru þekktar fyrir einstakt bragð.
Lögregla leitar stórtækra ostruþjófa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd