Lést eftir baráttu við krabbamein

Tónlistarkonan og leikkonan Dolly Parton hafði glímt við krabbamein áður en hún lést. Hún var lögð inn á Vanderbilt-Ingram heilbrigðisstofnunina í heimabæ sínum í Nashville á föstudag. Þar lést hún umkringd ástvinum sínum.Greint var frá andláti Parton í gær. Talsmaður hennar sagði síðar í yfirlýsingu til fjölmiðla að hún hefði verið greind með krabbamein fyrir nokkru og fengið meðferð við því. Ekki kom fram hversu langt er síðan hún fékk þá greiningu. Í umfjöllun New York Times er greint frá því að hún hafi í fyrra þurft að fresta skemmtunum í Las Vegas vegna ótilgreindra heilsuvandamála og að hún hafi aflýst þeim skemmtunum fyrr á þessu ári af sömu sökum. Fyrir rúmri viku varð hún að sleppa því að mæta í skemmtigarðinn Dollywood eins og fyrirhugað hafði verið.
Lést eftir baráttu við krabbamein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd