Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum.