Bíll er óökufær eftir umferðaróhapp í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem þjónar Miðborginni, Seltjarnarnesi, Austurbæ og Vesturbæ, í gær eða nótt. Engin slys urðu á fólki að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nokkur afskipti af ökumönnum í gærkvöld og nótt sem stöðvaðir voru fyrir ýmis brot.Einn ökumaður reyndist aka undir áhrifum áfengis á 154 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80. Hann reyndist einnig réttindalaus og gaf ekki stefnuljós.Í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ hafði lögreglan afskipti af ungmenni á mótorkrosshjóli og var málið afgreitt með foreldrum ökumannsins. Tveir aðrir ökumenn bifhjóla voru stöðvaðir og reyndust þeir báðir undir áhrifum fíkniefna og á ótryggðum hjólum. Annar ökumaðuri