Lögregla leitar ostruþjófa

Ostrur þykja mikill herramannsmatur.EPA / TERESA SUAREZÁströlsk lögregluyfirvöld í New South Wales leita nú þjófa sem rændu ostrum frá ostrueldi nærri Taree, norður af Sydney. Þjófarnir rændu yfir 300 pokum með um 400 þúsund ostrum og er verðmæti þeirra metið á 350.000 ástralska dollara eða um 30,4 milljónir íslenskra króna.Þjófnaðurinn átti sér stað fyrr á þessu ári. Lögregluyfirvöld greindu þó fyrst frá þjófnaðinum í gær og óskuðu eftir hvers kyns upplýsingum frá almenningi varðandi ránið.Ostrur eru vinsælar á matseðlum veitingastaða í Ástralíu og staðbundnar tegundir eru þekktar fyrir einstakt bragð.
Lögregla leitar ostruþjófa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd