Yfirvöld í El Salvador hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka undanfarið. Almannavarnir El Salvador hafa gefið úr rauða viðvörun vegna hita og þurrka á landbúnaðarsvæðum vegna uppskerubrests.Þar með er virkjað eftirlit og aðstoð fyrir samfélög sem verða fyrir áhrifum þurrkanna sem raktir eru til veðurfyrirbærisins El Niño. Yfirvöld í Hondúras og Panama hafa einnig lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka.14 hitamet hafa fallið í El Salvador það sem af er ágúst. Lítil úrkoma hefur verið á sama tíma en yfirleitt er næg úrkoma á þessum tíma árs í landinu. Mörg samfélög í El Salvador eru staðsett á þurru landsvæði sem nær einnig til Hondúras og Níkaragva en þetta þurra belti er sérlega viðkvæmt fyrir öfgum í veðurfari.Mánaðarleg hitamet féllu í öllum löndunum þremur í júní og jú