Til stendur að malbika framhjáhlaup og tengingar við Hringveg, Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut milli klukkan 9 og 16 í dag, miðvikudag, ef veður leyfir. Í tilkynningu frá Colas segir að umferð verði handstýrt á kafla þegar þess þarf og hægt verður á umferðarhraða.Þá eru einnig ráðgerðar malbikunarframkvæmdir á Reykjanesbraut og Miklubraut næstu kvöld og nætur ef veður leyfir. Til stendur að malbika eftirfarandi: * Malbikun á Reykjanesbraut í norðurátt á milli Vífilsstaðavegar og Breiðholtsbrautar. Framkvæmdirnar munu standa frá 20:00 til 07:00 aðfaranótt 27. ágúst. Reykjanesbraut á milli Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar verður lokuð í norðurátt meðan á framkvæmdum stendur. * Malbikun á Reykjanesbraut í suðurátt á milli Arnarnesvegar og Vífilsstaðavegar. Framkvæmdirn