Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár.