Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við.