Fulltrúar Samfylkingar í borgarráði lögðu fram bókun á aukafundi borgarráðs í morgun, þar sem umfangsmiklar breytingartillögur í rekstri borgarinnar voru samþykktar.Samfylkingin lagði fram 47 spurningar um hvernig breytingarnar yrðu í framkvæmd og hvernig árangur og áhrif yrðu metin.Gagnrýnistónninn er skýr og spurningarnar líka.Heiða Björg Hilmisdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og nú borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýnir grundvallarstefnubreytingu í lykilmálaflokkum án þess að opinber umræða hafi farið fram.Heiða Björg ræddi þessi mál í Speglinum í kvöld. VERIÐ AÐ FÆRA FÓLK OG FJÁRMAGN ÚR HVERFUNUM Heiða Björg segir að með hagræðingartillögunum sé verið að færa bæði starfsfólk og fjármagn úr hverfum borgarinnar og inn í miðlægt kerfi.„Þar sem að samþætting verður erfiðari og þjón