Fræsa þarf upp nýlega lagt klæðingarlag á um eins kílómetra löngum kafla Snæfellsvegar við Kaldármela og leggja að nýju eftir að það skemmdist.Bæjarstjóri Snæfellsbæjar fundaði með stjórnendum Vegagerðarinnar og segir þá hafa lofað meiri vandvirkni. UMFERÐ OG LAUST STEINEFNI SKEMMDU YFIRBORÐ VEGARINS Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að fimmtudaginn 20. ágúst hafi neðra lag klæðingar verið lagt á um eins kílómetra löngum kafla.Gert hafi verið ráð fyrir þurru veðri sólarhring eftir verkið samkvæmt veðurspám. Því hafi staðið til að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Rigning hafi þó komið í veg fyrir það. Mikil þung umferð í samspili við hið lausa steinefni hafi skemmt yfirborð vegarins.Verkið var boðið út 3. febrúar og var samið við Borgarverk um framkvæmdina. Vinna hófst í byrju