Fokdýrar framkvæmdir framundan

Mikið kapp er lagt á að Akureyrarkirkja skarti sínum allra besta búningi árið 2040 þegar hún verður 100 ára. Mikið viðhald er á döfinni sem gæti reynst kostnaðarsamt.„Það þarf nú meðal annars að skipta um gólfið hérna í kirkjunni. Það þarf að laga glugga, það þarf að gera við orgelið og það þarf að laga loftræstinguna í kirkjunni,“ segir Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur á Akureyri. Hún segir einnig tímabært að skipta um eldhús í safnaðarheimilinu en það er mikið notað undir erfidrykkjur og annað slíkt. Þá þarf einnig að gera við gluggana sem einkenna kirkjuna og mögulega flytja þá úr landi til þess.Gróflega áætlað gæti kostnaður verið um 500 milljónir við öll verkin sem fram undan eru í kirkjunni. Búið er að stofna hollvinasamtök, vini Akureyrarkirkju, til þess að aðstoða með kostnaði
Fokdýrar framkvæmdir framundan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd